Lærðu á gervigreind

Hvað er gervigreind? Útskýrt á mannamáli

Einföld útskýring á því hvað gervigreind er, hvað hún gerir vel og hvar hún getur farið úrskeiðis.

Orðið gervigreind heyrist nánast daglega. Hér útskýrum við á einföldu máli hvað liggur þar að baki og hvað skiptir máli fyrir þig í rekstrinum.

Hún giskar á næsta orð

Þegar fólk talar um gervigreind í dag á það oftast við forrit sem skilja og skrifa texta. Þessi forrit hafa lesið ógrynni af bókum, vefsíðum og öðrum texta. Af því hafa þau lært hvernig orð raðast saman.

Þú þekkir þetta úr símanum. Þegar þú skrifar skilaboð stingur síminn upp á næsta orði. Gervigreind gerir í grunninn það sama, bara miklu betur. Hún flettir ekki upp svarinu eins og í símaskrá. Hún giskar á hvaða orð passar best næst, svo á orðið þar á eftir, og þannig koll af kolli þar til svarið er komið.

Þetta er svolítið eins og manneskja sem hefur lesið ótrúlega mikið. Hún getur talað um nánast hvað sem er og hljómar sannfærandi. En hún man ekki alltaf hvar hún las hlutina og stundum ruglar hún saman því sem er satt og því sem hljómar rétt.

Í hverju hún er góð

Gervigreind nýtist best þar sem verkið snýst um texta:

  • að draga saman langan texta í nokkrar línur
  • að skrifa fyrstu drög að tölvupósti eða auglýsingu
  • að flokka erindi, til dæmis hvort póstur sé pöntun eða kvörtun
  • að lesa upplýsingar af reikningi, eins og dagsetningu og upphæð
  • að finna svar í löngu skjali þegar spurt er á venjulegu máli
  • að þýða á milli tungumála

Hún þreytist ekki og henni leiðist ekki að vinna sama verkið hundrað sinnum á dag.

Hvar hún er veik

Gervigreind getur haft rangt fyrir sér. Það sem verra er: hún hljómar alveg jafn örugg þegar hún hefur rangt fyrir sér og þegar hún hefur rétt fyrir sér. Hún getur búið til tölu, nafn eða heimild sem lítur vel út en er einfaldlega ekki til.

Hún veit heldur ekkert um fyrirtækið þitt nema þú segir henni það. Hún þekkir ekki verðskrána þína, opnunartímann eða viðskiptavinina.

Hún skilur íslensku en gerir stundum villur, til dæmis í beygingum eða orðavali. Texti frá henni getur líka hljómað stirður þótt málfræðin sé rétt.

Og hún ber enga ábyrgð. Ef eitthvað fer úrskeiðis er það alltaf manneskja sem þarf að svara fyrir það.

Hvað þýðir þetta fyrir þig

Hugsaðu um gervigreind eins og duglegan nýjan starfsmann sem er fljótur að vinna en þekkir ekki enn til. Þú lætur hann sjá um undirbúninginn en lest sjálfur yfir áður en eitthvað fer til viðskiptavinar.

Þess vegna er reglan hjá okkur einföld. Þar sem mistök kosta, til dæmis í bókhaldi eða svörum til viðskiptavina, fer manneskja alltaf yfir verkið áður en nokkuð er sent eða fært til bókar. Og áður en við tökum nokkuð í notkun prófum við það á þínum eigin gögnum, svo þú sjáir hvernig það stendur sig í raun.

Ef þú vilt ræða hvort gervigreind nýtist í þínum rekstri geturðu sent okkur línu.