Gervigreind og persónuvernd: þetta skaltu athuga
Hvað þú ættir að skoða áður en þú lætur gervigreind vinna með upplýsingar um viðskiptavini og starfsfólk.
Þegar gervigreind fær að vinna með tölvupóst, reikninga eða skjöl fær hún líka aðgang að upplýsingum um fólk. Þá skiptir máli hvar þær upplýsingar lenda og hver getur séð þær.
Þessi grein er ekki lögfræðiráðgjöf, heldur almenn leiðsögn á mannamáli.
Hvar eru gögnin geymd
Spurðu í hvaða landi gögnin eru geymd og unnin. Á Íslandi og innan ESB gilda sömu persónuverndarreglur, oft kallaðar GDPR. Þær segja til um hvernig fara má með upplýsingar um fólk. Ef gögnin fara út fyrir það svæði þarf að vera ljóst hvernig þau eru vernduð.
Hjá AkurAI eru gögnin hýst innan ESB í dag og markmiðið er að hýsa þau á Íslandi.
Eru gögnin notuð til þjálfunar
Að þjálfa gervigreind þýðir að láta hana læra af texta svo hún verði betri. Sum forrit nota það sem notendur skrifa í þessum tilgangi. Þá gætu upplýsingar frá þér orðið hluti af kerfi sem aðrir nota. Spurðu beint hvort gögnin þín séu notuð til þjálfunar og fáðu svarið skriflega.
Hjá okkur er reglan skýr: gögn viðskiptavina eru aldrei notuð til að þjálfa gervigreind.
Vinnslusamningur
Ef annað fyrirtæki vinnur með persónuupplýsingar fyrir þína hönd þarf að gera vinnslusamning. Í honum stendur hvað má gera við gögnin, hvernig þau eru varin og hvað verður um þau þegar samstarfinu lýkur. AkurAI gerir slíkan samning við viðskiptavini sína. Ef seljandi býður ekki upp á vinnslusamning er það slæmt merki.
Bara sá aðgangur sem þarf
Aðstoðarmaður sem flokkar tölvupóst þarf ekki aðgang að launabókhaldinu. Gott kerfi fær bara þann aðgang sem verkið krefst og ekkert umfram það. Þá er minna í húfi ef eitthvað fer úrskeiðis.
Skráð og yfirfarið
Allt sem gervigreindin gerir ætti að vera skráð, svo hægt sé að sjá eftir á hvað gerðist og hvers vegna. Þar sem mistök kosta, til dæmis í svörum til viðskiptavina eða í bókhaldi, ætti manneskja að fara yfir verkið áður en nokkuð er sent eða fært til bókar.
Spurðu seljandann að þessu
- Í hvaða landi eru gögnin geymd og unnin?
- Eru gögnin mín notuð til að þjálfa gervigreind?
- Gerið þið vinnslusamning við mig?
- Hvaða aðgang fær kerfið og get ég takmarkað hann?
- Er skráð hvað kerfið gerir og get ég skoðað skráninguna?
- Fer manneskja yfir áður en eitthvað er sent eða fært til bókar?
- Hvað verður um gögnin mín ef ég hætti og fæ ég þau til baka?
Ef svörin eru loðin segir það líka sitt.
Ef þú vilt fara yfir þessi atriði með okkur geturðu haft samband.